Siggi sæti er sextugur í dag
Með silfur í hári og rokk í fínu lagi
Hann blikkar og segir ég er enginn amatör
Og dregur upp gítar það glymur um sali og torg
Gítarinn hangir svo þungur um háls
Hann hendir sér í splitt og telur sig frjáls
En liðamót braka og smellur í góm
Á meðan við bíðum eftir hans fyrsta tón
Kominn í hundana – það er nú satt
Með Dexter til vinstri og Snoppu í takt
Hann labbar með tauminn og rokkar í leið
Og heldur sér ungum með poka af skreið
Pönkið hann hlustaði frá morgni til kvölds
Hávaðinn ætlaði alla að æra
Nú er hann kominn í mýkra rokk
Vel greiddur og sætur með silfraðan lokk
Sem olli honum smávegis panik panik
Hann er í barnaleikjum á kafi
Spillir þeim með nammi elektronik!
Siggi sæti í dans ekki vanur
Dálítið stirður en sprækur í anda
Um dansgólfið hann ekki svífur
Því hann er nú örlítið stífur
Nú boltana eltir til að berja þá fast
Í holurnar sjaldan þó hittir
Hann telur sig meistara talar um takt
En torfan hún rifnar og spýtir
Whisky og Campari er hressandi blanda
Það eina sem vantar er að kappinn nái að anda
Með bumbuna bera hann brosir svo breitt
Hann skálar í botn þó hann muni ekki neitt Muni ekki neitt
Og heldur sér ungum með poka af skreið Skreið skreið skreið