Græjur í stað fyrir orgelið
Enginn rembingskór sem orgar
Aðeins bílstjórinn sem syngur sína söngva
Prédikar og semur sínar ræður
Sem snúast um að blóta og gera lítið úr næsta bílstjóra
Já, ég er miklu betri en hann
Ligg á flautunni, læt hann heyra það
Minn bíll er stærri og kraftmeiri en hans
Þurfum ekki kirkjur, þegar allir eiga jeppa
Þurfum ekki kirkjur, þegar allir eru á jeppa
Þurfum ekki kirkjur, þegar allir skulda jeppa
Þurfum ekki kirkjur, þegar allir eiga jeppa
Í þessar stóru tómu kirkjur
Því það er allt annað sem við viljum
Við viljum fleiri og betri vegi
Risavaxinn mislæg gatnamót, plássfrek bílastæði
Tvöfalda akrein upp og niður Laugaveginn
Almennilegar hraðbrautir þvers og kruss um landið
Hvernig væri að gera nokkur bílabíó
Á þeim stöðum sem kirkjurnar voru áður, áður
Þar sem kirkjurnar voru áður
Þurfum ekki kirkjur, þegar allir eiga jeppa
Þurfum ekki kirkjur, þegar allir skulda jeppa
Þurfum ekki kirkjur, þegar allir eru á jeppa
Þurfum ekki kirkjur, því allir eru á jeppa
Margra milljón króna lúxus-jeppa sem við greiðum niður á lánum
Á mörgum mögrum, mörgum mögrum, mörgum mögrum árum
Þurfum ekki jeppa ef allir troðast í kirkju
WRITERS
Birgir Hilmarsson, Jón Friðriksson, Óskar Ágústsson, Stefán Sigurðsson, Unnsteinn Ólafsson