Bugaður bóndinn hann bölvar
Þetta gengur alveg fram af mér
Andskotans djöfulsins helvítis fífil
Ósáttur við sín kaup og kjör
Á aldrei pening til að fara í frí
Á hverju eigum við að lifa
Að bíta gras er fyrir dýr
Að baða í saur er fyrir grís
Að liggja á beit er fyrir dýr
Að fæða kálf er fyrir kýr
Ljóstillífum ef við getum
Hvar er lausnin handa þér
Ráðherra ráðinn til að ráða
Ég kaus hann í einhverju óráði
Skilur ekki búmanninn, þann sauð
Mættur með fötu fulla af saur
Nei hættu alveg þessu skítkasti
Af hverju erum við að kjósa
Að bíta gras er fyrir dýr
Að baða í saur er fyrir grís
Að liggja á beit er fyrir dýr
Að fæða kálf er fyrir kýr
Ljóstillífum ef við getum
Lömbin koma í heiminn fús
Það þarf að keyra þeim á sláturhús
Ég held ég þurfi kannski soldið meira bús
Fyrir alla bændur sem berjast í bökkum
Skrepp kannski í bæinn ef ég nenni því
Finn svo kannski brennivínsflösku til að laumast í
Ráðherra ráðinn farðu nú í rassgat
Það þarf að keyra hann á sláturhús
Þurfum ekkert að hlusta meira á þín ráð
Iðnaðarhampur mun öllu bjarga
Ei lambakjöt á diskinn þinn
Já bíddu bara og svo skaltu sjá
Að bíta gras er fyrir dýr
Að baða í saur er fyrir grís
Að liggja á beit er fyrir dýr
Að fæða kálf er fyrir kýr
Ljóstillífum ef við getum
Að bíta gras er fyrir dýr
Að baða í saur er fyrir grís
Að liggja á beit er fyrir dýr
Að fæða kálf er fyrir kýr
Ljóstillífum ef við getum
WRITERS
Birgir Hilmarsson, Jón Friðriksson, Óskar Ágústsson, Stefán Sigurðsson, Unnsteinn Ólafsson