Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þótt kveðjan væri stutt í gær
ef annað segja stjörnur tvær
Og þá mun allt verða eins og var
sko áður en þú veist, þú veist
Og þetta eina sem útaf bar
okkar á milli í friði leyst
Og seinna, þegar tunglið hefur tölt um langan veg
þá tölum við um drauminn sem við elskum, þú og ég
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þótt kveðjan væri stutt í gær
ef annað segja stjörnur tvær