LyricFind Logo
LyricFind Logo
Profile image icon
Lyric cover art

Móðir

Apple Music logo
Deezer logo
Spotify logo
Lyrics
Vetur minnir mig à þig
Ég get illa sætt mig við
Að sjá þig ekki framar

Þerra í burt tárin mín
Hugsa til þín móðir mín
Einn dag á ný við saman

Taktu frá sæti þér við hlið
Í mig verður þó einhver bið
Mundu mig og ég man þig

Það verður í lagi með mig

Vetur þú ert hér
Sumar ég með þér
Stjörnur þú og ég
Ég finn að þú ert hér

Þú varst sú sem sást mig fyrst
Getur mig ei framar kysst
Því farinn ertu fundar til

Búðu vel um þig þar til
Í framtíð ég mun finna þig
Eilífðin við og fleiri til

Það verður í lagi með mig

Vetur þú ert hér
Sumar ég með þér
Ég finn að þú ert hér

Eins og ljósin létta mér göngu
Leiðbeindir þú mér fyrir löngu
Eins og trúin flytur fjöllin
Kenndir þú mér allt um tröllin
Þú varst allt það góða í einni
Sál ekki til hreinni og beinni
Fyrir mér varstu fallegri en sólin
Og þú lýstir upp norðurpólinn

Vetur þú ert hér
Sumar ég með þér
Stjörnur þú og ég
Ég finn að þú ert hér

WRITERS

Brynjar Geirsson

PUBLISHERS

Lyrics © O/B/O DistroKid

Share icon and text

Share


See A Problem With Something?

Lyrics

Other